Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

hafa so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þolfall
 1
 
 vera með (e-ð)
 dæmi: ég hef mitt eigið skrifborð í vinnunni
 dæmi: hann hafði dagblað í hendinni
 dæmi: við höfum stóran garð
 2
 
 hjálparsögn til að mynda núliðna og þáliðna tíð (lokið horf)
 dæmi: ég hef aldrei komið til Spánar
 dæmi: hann hefur verið í burtu að undanförnu
 dæmi: hún hafði farið á pósthúsið
 dæmi: þau höfðu ákveðið að hittast þar
 3
 
 hafa sig <á brott>
 
 fara burt, snáfa burt
 dæmi: hundurinn hafði sig loksins burt
 4
 
 hafa + af
 
 a
 
 hafa <þetta> af
 
 takast þetta
 dæmi: hún hafði það af að sigra í spretthlaupinu
 b
 
 hafa það af
 
 halda lífi, lifa af hættu eða sjúkdóm
 5
 
 hafa + á móti
 
 hafa <ekkert> á móti <þessu>
 
 vera <ekki> mótfallinn þessu
 dæmi: ég hef ekkert á móti hnefaleikum
 dæmi: segið til ef þið hafið eitthvað á móti þessu
 6
 
 hafa + eftir
 
 hafa <þetta> eftir <honum>
 
 segja þetta eins og hann sagði það
 dæmi: þetta var haft eftir ráðherranum í gær
 7
 
 hafa + fram
 
 hafa sitt fram
 
 ná fram vilja sínum
 dæmi: ef þeir hafa sitt fram hækka launin umtalsvert
 hafa <þetta> fram
 
 fá þessu framgengt, fá þetta í gegn
 8
 
 hafa + fram yfir
 
 hafa <þetta> fram yfir <hana>
 
 vera betri, hafa betri stöðu en hún að þessu leyti
 dæmi: poppkorn hefur ýmislegt fram yfir annað snakk
 9
 
 hafa + fyrir
 
 a
 
 hafa fyrir <þessu>
 
 ómaka sig við þetta, hafa fyrirhöfn af þessu
 dæmi: hún hafði fyrir því að baka 3 tertur í veisluna
 dæmi: þau höfðu mikið fyrir því að skipuleggja skólaballið
 b
 
 hafa <eitthvað> fyrir sér
 
 styðjast við vitneskju eða góð rök
 dæmi: ég veit ekki hvað hann hefur fyrir sér þegar hann segir þetta
 10
 
 hafa + í
 
 a
 
 hafa í sig og á
 
 hafa nóg til að framfleyta sér
 b
 
 hafa sig í <að hringja>
 
 hafa framkvæmd, dug, kjark í sér til að hringja
 dæmi: við höfðum okkur loks í að láta mála þakið
 11
 
 hafa + í frammi
 
 hafa sig <lítið> í frammi
 
 vera áberandi í umræðum, í samfélaginu
 dæmi: hann hafði sig fremur lítið í frammi á fundinum
 12
 
 hafa + ofan af
 
 a
 
 hafa ofan af fyrir <sér>
 
 stytta sér stundir
 dæmi: ég hafði ofan af fyrir mér með lestri skáldsagna
 dæmi: það þarf að hafa ofan af fyrir krökkunum í flugvélinni
 b
 
 gamalt
 hafa ofan af fyrir <fjölskyldunni>
 
 framfleyta fjölskyldunni, sjá henni farborða
 13
 
 hafa + til
 
 hafa sig til
 
 gera sig kláran, fínan
 dæmi: þær eru að hafa sig til fyrir samkvæmið
 14
 
 hafa + undan
 
 hafa (ekki) undan <henni>
 
 koma minna í verk en hún
 dæmi: þeir hafa ekki undan að framleiða vöruna
 dæmi: starfsfólkið hefur varla undan að taka við umsóknum
 15
 
 hafa + undir
 
 a
 
 hafa <skjalið> undir höndum
 
 hafa skjalið í vörslu sinni
 b
 
 hafa <hann> undir
 
 vera honum yfirsterkari í átökum
 16
 
 hafa + upp á sig
 
 <þetta> hefur <lítið> upp á sig
 
 þetta gagnar lítið, þetta hefur engan tilgang eða árangur
 dæmi: það hefur ekkert upp á sig að fara í mál við hann
 17
 
 hafa + uppi á
 
 hafa uppi á <bréfunum>
 
 finna bréfin
 dæmi: það reyndist erfitt að hafa uppi á eiganda bátsins
 18
 
 hafa + upp úr
 
 hafa <lítið> upp úr <starfinu>
 
 fá litlar tekjur eða hagnað af starfinu
 dæmi: þeir hafa sæmilega upp úr búðinni
 hafa <mikið> upp úr sér
 
 hafa miklar tekjur eða hagnað
 það er <lítið> upp úr <þessu> að hafa
 
 þetta skilar litlum hagnaði, ágóða
 19
 
 hafa + út undan
 
 hafa <hana> út undan
 
 taka hana ekki með (þegar aðrir fá e-ð)
 dæmi: Öskubuska var alltaf höfð út undan
 20
 
 hafa + út úr
 
 hafa út úr <honum> <fé>
 
 ná af honum fé með klækjum
 21
 
 hafa + við
 
 a
 
 hafa mikið við
 
 hafa hátíðarbrag á e-u, gera e-ð með viðhöfn
 dæmi: þau elda nautakjöt þegar þau vilja hafa mikið við
 b
 
 hafa (ekki) við <honum>
 
 vera lengur en hann, ná honum (ekki)
 dæmi: hann talaði svo hratt að ég hafði ekki við að skrifa það niður
 22
 
 hafa + yfir
 
 hafa yfir <vísuna>
 
 segja fram vísuna
 hafast
  
orðasambönd:
 hafðu það gott
 
 gangi þér allt vel
 það verður að hafa það
 
 svo verður þá að vera, það er ekkert við því að gera
 dæmi: það var uppselt á tónleikana - það verður bara að hafa það
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík