Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

færa so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 flytja (e-ð) stutta vegalengd (t.d. til hliðar)
 dæmi: ég færði borðið út að glugganum
 dæmi: getur þú fært bílinn þinn?
 dæmi: hann ætlar að færa rósarunnann nær húsinu
 færa <stólinn> til
 
 dæmi: það er nóg pláss ef við færum þessa stóla til
 2
 
 fallstjórn: þágufall + þolfall
 láta (e-n) hafa (e-ð)
 dæmi: hann færði mér blómvönd á afmælinu
 dæmi: hún færir mér stundum nýuppteknar kartöflur
 dæmi: föngunum var færður matur
 færa <honum> <bók> að gjöf
 3
 
 fallstjórn: þolfall
 klæða (e-n) (í e-ð)
 dæmi: hún færði drenginn í peysuna
 4
 
 færa + fram
 
 færa fram <gildar ástæður>
 
 koma með, nefna gildar ástæður
 dæmi: hann færði fram rök máli sínu til stuðnings
 hafa <eitthvað> fram að færa
 
 hafa e-ð að segja
 5
 
 færa + frá
 
 gamalt
 færa frá
 
 skilja að ær og lömb í byrjun sumars
 6
 
 færa + fyrir
 
 færa <hana> fyrir <dómara>
 
 flytja hana á fund dómara
 7
 
 færa + til
 
 færa <sófann> til
 
 flytja sófann á annan stað stutt frá
 færa <upphæðina> til bókar
 
 skrá upphæðina í bókhaldið
 8
 
 færa + upp
 
 færa upp <leikritið>
 
 setja leikritið á svið
 dæmi: hann hefur fært upp þrjú leikrit Ibsens
 9
 
 færa + út
 
 færa út <starfsemina>
 
 víkka eða stækka starfsemina
 dæmi: landið vill færa út fiskveiðilögsögu sína
 færa út kvíarnar
 
 auka umsvif sín
 dæmi: þeir ætla að færa út kvíarnar og hefja rekstur í fleiri löndum
 færast
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík