Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

frá fs/ao
 
framburður
 fallstjórn: þágufall
 1
 
 um hreyfingu frá e-m stað
 dæmi: færðu stigann frá glugganum
 dæmi: hvaðan er þessi flugvél að koma? - frá Akureyri
 farðu frá
 
 dæmi: farðu frá, ég þarf að komast inn í húsið
 2
 
 um fjarlægð
 dæmi: húsið stendur bara fáeina metra frá götunni
 dæmi: hvað er langt frá Reykjavík til Akureyrar?
 3
 
 um uppruna
 dæmi: hvaðan eru þessar rósir? - frá Hollandi
 4
 
 um tímabil fram að tilteknum tíma
 dæmi: hann hefur verið atvinnulaus frá áramótum
  
orðasambönd:
 vera frá
 
 1
 
 vera fjarverandi frá vinnu
 dæmi: hún hefur verið mikið frá í vetur vegna veikinda
 2
 
 finna fyrir mikilli vanlíðan, finna mikinn verk/sársauka
 dæmi: ég er alveg frá í handleggnum eftir sprautuna
 3
 
 vera lokið
 dæmi: ég kláraði verkefnið í gærkvöldi, svo að það er loksins frá
 vera ekki frá því
 
 halda e-ð en þó með fyrirvara
 dæmi: ég er ekki frá því að við höfum sést áður
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík