Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

fella so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þolfall
 1
 
 láta (e-ð/e-n) falla
 dæmi: hann felldi tvö tré í garðinum
 dæmi: hún hljóp á stelpuna og felldi hana
 2
 
 drepa (e-n)
 dæmi: hermaðurinn var felldur í bardaga
 3
 
 láta (e-n/e-ð) falla í kosningu
 dæmi: útlit er fyrir að stjórnin verði felld
 dæmi: fundarmenn felldu tillöguna
 4
 
 láta (e-n) falla í skóla
 dæmi: kennarinn felldi mig í frönsku
 5
 
 fella + brott
 
 fella <þetta> brott
 
 taka þetta út
 dæmi: tvær setningar hafa verið felldar brott úr textanum
 6
 
 fella + niður
 
 fella <þetta> niður
 
 hætta við (e-ð), aflýsa (e-u)
 dæmi: allt flug var fellt niður þennan dag
 dæmi: bankinn felldi niður skuldina
 7
 
 fella + saman
 
 fella <gólfborðin> saman
 
 grópa þau saman
 8
 
 fella + við
 
 fella sig ekki við <þetta>
 
 sætta sig ekki við þetta
 dæmi: hann fellir sig ekki við úrskurð dómsins
 felldur
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík