Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

skríða so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 mjaka sér áfram á kviðnum eða á höndum og hnjám (um fólk)
 dæmi: barnið er byrjað að skríða
 dæmi: hann skreið aftur upp í rúm
 skríða á fjórum fótum
 skríða á hnjánum
 2
 
 hreyfa sig áfram (um skordýr, köngulær, eðlur, slöngur ...)
 dæmi: slöngur skriðu um kjarrið
 dæmi: kóngulóin skreið upp vegginn
 dæmi: unginn skríður úr egginu
 3
 
 bruna áfram (um skip)
 dæmi: farþegaskipið skreið út fjörðinn
 4
 
 (um jökul, jarðveg) mjakast áfram á jöfnum hraða
 dæmi: skriðjökullinn skríður stöðugt fram
 dæmi: þétt þoka skreið niður fjallið
 5
 
 ná lágmarksárangri (á prófi); takast e-ð með naumindum
 dæmi: þær skriðu á prófinu með lágmarkseinkunn
 dæmi: flokkurinn rétt skreið yfir 10 prósent í kosningunum
 6
 
 skríða + fyrir
 
 skríða fyrir <henni>
 
 niðurlægja sig til að þóknast henni, sýna mikla undirgefni
 dæmi: sumir starfsmenn skríða fyrir forstjóranum
 7
 
 skríða + saman
 
 skríða saman
 
 jafna sig eftir veikindi eða annað áfall; taka á sig mynd
 dæmi: hún er öll að skríða saman eftir aðgerðina
 dæmi: ritgerðin mín er alveg að skríða saman
  
orðasambönd:
 láta til skarar skríða
 
 ráðast í að framkvæma e-ð, grípa til aðgerða; ráðast á e-n/e-ð
 dæmi: lögreglan lét til skarar skríða gegn hryðjuverkamönnunum
 dæmi: við ákváðum að láta til skarar skríða og stofna fyrirtæki
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík