|
framburður |
| beyging |
| það sem maður vonar, tilfinning óskar |
| binda vonir við <nýja skólastjórann> |
| gera sér vonir um <góðan árangur> |
| gefa upp alla von |
| halda í vonina |
| lifa í voninni |
| orðasambönd: |
| eiga sér einskis ills von |
|
| vera grunlaus um að eitthvað illt sé í aðsigi |
|
| eiga sér ekki viðreisnar von |
|
| eiga enga möguleika framar |
|
| eiga von á barni |
|
|
| eiga von á sér <um mánaðamótin> |
|
| eiga að fæða barn um mánaðarmótin |
|
| eiga von á <gestum> |
|
|
| vera úrkula vonar |
|
| vera búinn að missa alla von |
|
| það er borin von að <við fáum peningana aftur> |
|
| það eru ekki miklar líkur á að við fáum peningana aftur |
|
| það er ekki von á góðu |
|
|
| það er ekki öll von úti |
|
| það eru enn dálitlir möguleikar |
|
| það er von að <hún sé glöð> |
|
| það er ástæða fyrir því að hún er glöð |
|
| það getur brugðið til beggja vona |
|
| það er ekki vitað hvernig þetta fer |
|
| það standa vonir til þess að <húsbyggingunni verði lokið eftir mánuð> |
|
| menn vonast eftir því að húsbyggingunni verði lokið eftir mánuð |
|
| <hann er> að vonum <áhyggjufullur> |
|
| hann er að sjálfsögðu, eðlilega áhyggjufullur |
|
| <hafa staðið sig> framar vonum |
|
| hafa staðið sig betur en búist var við |
|
| <kaupa hlutabréf> í von um <að gengið hækki> |
|
| kaupa hlutabréf í þeirri fullvissu að gengið hækki |
|
| <bíða> milli vonar og ótta |
|
|
| <taka með snæri> til vonar og vara |
|
| taka snæri með til öryggis |
|
| <leggja af stað> upp á von og óvon |
|
| leggja af stað þótt ekki sé vitað hvort maður nái takmarkinu |
|
| <ákvörðunin dróst> von úr viti |
|
| ákvörðunin dróst óeðlilega lengi |
|