Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

skjóta so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 hæfa (e-n) með skotvopni
 dæmi: kúrekinn skaut bófann í myndinni
 dæmi: 50 fuglar hafa verið skotnir
 2
 
 fallstjórn: þágufall
 aka (e-m) eitthvert (stutt), skutla (e-m)
 dæmi: ég skal skjóta þér í vinnuna
 3
 
 skjóta + inn
 fallstjórn: þágufall
 skjóta inn <orði>
 
 koma að orði í orðaflaum einhvers
 dæmi: ég hef líka komið þangað, skaut hún inn
 4
 
 skjóta + saman
 skjóta saman
 
 leggja fram jafnmikið fé
 dæmi: systkinin skutu saman í afmælisgjöf handa honum
 5
 
 skjóta + til
 fallstjórn: þágufall
 fara með dómsmál fyrir rétt
 dæmi: málinu var skotið til hæstaréttar
 6
 
 skjóta + undan
 fallstjórn: þágufall
 skjóta <peningunum> undan
 
 koma því undan, stela því (t.d. frá skatti)
 dæmi: stjórnendur fyrirtækisins segjast engu hafa skotið undan
 7
 
 skjóta + upp
 a
 
 fallstjórn: þágufall
 skjóta upp <flugeldum>
 
 senda logandi flugelda upp í loftið
 dæmi: borgarbúar skjóta upp ótal flugeldum á gamlárskvöld
 skjóta upp kollinum
 
 koma í ljós, birtast
 dæmi: illgresið skýtur stöðugt upp kollinum á nýjum stöðum
 dæmi: margar góðar hugmyndir skutu upp kollinum á fundinum
 b
 
 frumlag: þágufall
 <henni> skýtur upp
 
 hún kemur úr kafi
 dæmi: hann féll í vatnið en honum skaut fljótt upp aftur
 skjótast
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík