Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

sjón no kvk
 
framburður
 beyging
 1
 
 hæfileikinn að sjá
 dæmi: hann missti sjónina í æsku
 dæmi: sjónin er ennþá góð hjá gömlu konunni
 2
 
 það sem sést
 dæmi: það var falleg sjón þegar skipið sigldi inn fjörðinn
 þekkja <hana> í sjón
 
 þekkja hana af útlitinu
  
orðasambönd:
 missa sjónar á <takmarkinu>
 
 gleyma upprunalegu takmarki
 sjón er sögu ríkari
 
 betra er að hafa séð eitthvað sjálfur en að heyra frá því sagt
 það er ekki sjón að sjá <hana>
 
 hún lítur mjög illa út
 sjónir
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík