Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

sjálfur fn
 
framburður
 1
 
 notað til undirstrika að átt er við einmitt þann eða það sem vísað er til, oft andspænis öðrum
 dæmi: hann þolir illa að aðrir fái meiri athygli en hann sjálfur
 dæmi: móttökurnar komu jafnvel útgefandanum sjálfum á óvart
 dæmi: gestirnir fengu hjónarúmið en við sváfum sjálf á dýnu á gólfinu
 dæmi: sjálf hafði hún aldrei komið til Parísar áður
 2
 
 hliðstætt
 (einkum um fólk, sérstaklega þá sem gegna virðingar- og valdastöðum) hann í eigin persónu
 dæmi: sjálfur páfinn var viðstaddur messuna
 dæmi: sjálft þjóðskáldið hefði ekki komist betur að orði
 3
 
 sjálfan sig
 (í afturbeygingu) einmitt sig (en ekki einhvern annan; yfirleitt ekki notað ef aðeins afturbeyging kemur til greina)
 dæmi: hann heilsaði og kynnti sjálfan sig
 dæmi: ég greiddi öllum stelpunum en gleymdi svo að greiða sjálfri mér
 dæmi: þau gera alltaf mestar kröfur til sjálfra sín
 dæmi: hann leit ekki á sjálfan sig sem atvinnusöngvara þótt hann syngi oft á mannamótum
 4
 
 í blótsyrðum
 dæmi: fjandinn sjálfur!
 dæmi: hvern fjárann sjálfan á þetta að þýða
  
orðasambönd:
 af sjálfu sér
 
 sjálfkrafa
 dæmi: deilurnar leystust bara af sjálfu sér
 í sjálfu sér
 
 sem slíkur eða slíkt; í rauninni
 dæmi: atburðurinn var í sjálfu sér ósköp hversdagslegur
 dæmi: í sjálfu sér hafði hún þegar gert alveg nóg
 vera ekki með sjálfum sér
 
 vera undarlegur í háttum
 það segir sig sjálft
 
 það er augljóst eða sjálfsagt
 dæmi: það segir sig sjálft að ekki er hægt að reka fyrirtækið lengi með tapi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík