| |
framburður |
| | beyging |
| | 1 |
| |
| | um tvo eða tvennt, hliðstætt, nafnorðið (oftast) með greini | | | einn af tveimur | | | dæmi: annar handleggurinn reyndist vera brotinn | | | dæmi: þau keyptu bara miða aðra leiðina | | | dæmi: hann var með hring í öðru eyranu | | | dæmi: ég var í skóla með öðrum tvíburanna | | | annar ... hinn | | |
| | (í umtali um tvo eða samanburði milli tveggja) | | | dæmi: það lágu tvær bækur á borðinu, önnur var skáldsaga og hin ljóðabók | | | dæmi: annar strákurinn er sonur okkar en hinn er besti vinur hans | | | dæmi: annað herbergið var málað gult en hitt grænt |
|
|
| | 2 |
| |
| | (um andstæður) ekki sá (eða það) sem fyrr var talinn eða minnst á | | | dæmi: meðlimir félagsins fá tímaritið frítt en aðrir þurfa að kaupa það | | | dæmi: þau keyptu gulrætur, rófur og annað grænmeti á markaðnum | | | dæmi: okkur fannst gisting og önnur þjónusta vera mjög dýr | | | enn annar | | |
| | einn til viðbótar | | | dæmi: einn var keyptur, annar leigður og enn annar tekinn í leyfisleysi |
|
|
| | 3 |
| |
| | um andstæður, í ýmiss konar samjöfnuði eða samanburði | | | dæmi: sumir eru alltaf á ferð og flugi en aðrir vilja helst alltaf vera heima hjá sér | | | dæmi: það er enginn einn tími betri en annar fyrir mig | | | dæmi: þeir höguðu sér bara eins og aðrir gerðu | | | dæmi: tvær ferðir eru minnisstæðari en aðrar | | | dæmi: ég vil helst fá frí um helgar eins og aðrir | | | öðrum fremur | | |
| | frekar en aðrir | | | dæmi: þetta mál er öðrum fremur erfitt úrlausnar |
|
|
| | 4 |
| |
| | óformlegt | | | einn til viðbótar | | | dæmi: kanntu annan? |
|
| | orðasambönd: |
| | annar eins <maður, fjöldi> |
| |
| | þvílíkur <maður, fjöldi> | | | dæmi: þau höfðu aldrei fundið annan eins ilm | | | dæmi: engin leiksýning hefur haft önnur eins áhrif á mig | | | dæmi: hefurðu nokkurn tíma heyrt aðra eins dellu? |
|