Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

lýsing no kvk
 
framburður
 beyging
 orðhlutar: lýs-ing
 1
 
 það að lýsa, veita birtu
 dæmi: það er góð lýsing í eldhúsinu
 dæmi: lýsingin var bara eitt kerti
 2
 
 frásögn af einhverju, greinargerð um eitthvað
 dæmi: lýsing á ferðalaginu
 dæmi: lögreglan er með nákvæma lýsingu á manninum
 dæmi: eftir lýsingunni að dæma gæti þetta verið makríll
 3
 
 handritafræði
 skreyting handrits eða bókar
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Athugið sérstaklega að eignarfall eintölu orðsins <i>lýsing</i> er <i>lýsingar</i> en ekki „lýsingu“ og eignarfall eintölu með greini er <i>lýsingarinnar</i> en ekki „lýsingunnar“.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík