Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

lúta so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þágufall
 beygja höfuðið niður
 dæmi: hann laut höfði í auðmýkt
 2
 
 fallstjórn: þágufall
 beygja sig undir vald (e-s)
 dæmi: Íslendingar lutu Danakonungi í margar aldir
 3
 
 lúta svo lágt
 
 verða sér til minnkunar, minnka sig
 dæmi: geta þeir lotið svo lágt að ætla að græða á spilafíklum?
 4
 
 lúta í lægra haldi
 
 bíða ósigur, játa sig sigraðan
 dæmi: erlenda liðið varð að lúta í lægra haldi í keppninni
 dæmi: herforinginn varð að lúta í lægra haldi fyrir óvininum
 5
 
 lúta + að
 
 varða (e-ð), snerta (e-ð)
 dæmi: samningurinn lýtur að viðskiptum landanna
 dæmi: helsta gagnrýnin laut að fjármálum fyrirtækisins
 dæmi: stofnunin veitir ráðgjöf um allt sem lýtur að fiskveiðum
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík