| |
framburður |
| | beyging |
| | ábendingarfornafn |
| | 1 |
| |
| | hliðstætt | | | ábendingarfornafn; bendir á annan en þann sem er tilgreindur, nálægastur eða áður hefur verið talað um | | | stendur með nafnorði með greini | | | dæmi: Steini er kominn en hinir strákarnir koma í kvöld | | | dæmi: settu fiskinn í pottinn ásamt öllu hinu hráefninu | | | dæmi: hin myndin sem ég sá um helgina var samt skemmtilegri | | | dæmi: sumir geta það sem er ómögulegt fyrir okkur hin |
|
| | 2 |
| |
| | sérstætt | | | ábendingarfornafn; bendir á annan en þann sem er tiltekinn, nálægastur eða áður hefur verið talað um | | | dæmi: tveir keppendur eru langt á undan öllum hinum | | | dæmi: maturinn er tilbúinn, viltu kalla á hina |
|
| | 3 |
| |
| | í samanburði milli tveggja einstaklinga eða hópa | | | dæmi: seinni sagan var ekki eins áhrifarík og hin |
|
| | 4 |
| |
| | sérstætt, sem atviksorð | | | hinn daginn, daginn eftir morgundaginn | | | dæmi: þau fara ekki á morgun heldur hinn |
|
| | 4 |
| |
| | í föstum orðasamböndum | | | hinir og þessir | | |
| | ýmsir | | | dæmi: við gáfum hina og þessa hluti á tombóluna | | | dæmi: það hafa hinir og þessir hringt |
| | | þessi ... hinn | | |
| | um andstæður, í samanburði | | | dæmi: þessi bíll er orðinn gamall en hinn er alveg nýr | | | dæmi: þú getur fengið þessar en hinar eru fráteknar |
| | | annar ... hinn | | |
| | um tvo eða tvennt | | | í umtali um tvo eða samanburði milli tveggja | | | dæmi: önnur stelpan er systir mín en hin er vinkona hennar | | | dæmi: þeir vildu gjarnan lána okkur annan en ekki hinn |
|
|