| |
framburður |
| | beyging |
| | fallstjórn: þolfall |
| | 1 |
| |
| | hafa (e-ð) fyrir stafni, aðhafast (e-ð) | | | dæmi: hvað ertu að gera? | | | dæmi: hún gerði þetta ekki viljandi | | | dæmi: við ætlum ekki að gera neitt sérstakt í kvöld | | | dæmi: hvað get ég gert fyrir þig? | | | gera eitthvað í málinu | | | gera sitt besta | | | gera sitt til að <hjálpa til> | | |
| | leggja sitt af mörkum, eiga þátt í að hjálpa til |
| | | gera <mikið> af því að <ferðast> | | | gerðu það (fyrir mig) | | |
| | í innilegri beiðni: vertu svo góður að .... | | | dæmi: leyfðu mér að eiga hvolpinn, gerðu það |
| | | hafa <lítið> að gera | | | það er <mikið> að gera |
|
| | 2 |
| |
| | búa (e-ð) til | | | dæmi: hann hefur gert tvær kvikmyndir | | | dæmi: hún gerir frábæra lifrarkæfu | | | dæmi: hann gerði tvær villur á prófinu |
|
| | 3 |
| |
| | starfa, hafa e-ð sem starf | | | dæmi: hvað gerir pabbi hennar? | | | dæmi: hann gerir ekki neitt, hann er atvinnulaus |
|
| | 4 |
| |
| | láta (e-ð/e-n) verða (e-ð) | | | dæmi: hún er að gera hann brjálaðan | | | dæmi: þau gerðu eldhúsið stórglæsilegt | | | dæmi: skvetta af ólífuolíu gerir matinn enn betri | | | gera hreint |
|
| | 5 |
| |
| | sem staðgengill fyrir aðra sagnliði | | | dæmi: ég ætlaði að vökva garðinn en ég gerði það ekki | | | dæmi: hana langaði að skamma drenginn en hún gat ekki gert það | | | dæmi: hann prjónar stundum, hann gerir það sér til gamans |
|
| | 6 |
| |
| | fallstjórn: þágufall + þolfall | | | valda (e-m) miska | | | dæmi: hann hefur ekki gert mér neitt | | | dæmi: hún gerði honum þann óleik að reykja inni |
|
| | 7 |
| |
| | fallstjórn: þágufall + þolfall | | | hafa viss áhrif á (e-n) | | | dæmi: þetta jurtate gerir þér gott |
|
| | 8 |
| |
| | <honum> er gert að <greiða sekt> | | |
| | honum er fyrirskipað, hann er látinn greiða sekt (formlega, af yfirvaldi) | | | dæmi: henni var gert að sæta geðrannsókn |
|
|
| | 9 |
| |
| | það gerir <byl> | | |
| | bylur brestur á, það byrjar að hvessa með snjókomu | | | dæmi: um kvöldið gerði mikið óveður |
|
|
| | 10 |
| |
| | gera + að | | |
| | a | | |
| | gera <hana> að <framkvæmdastjóra> | | |
| | fá henni hlutverk framkvæmdastjóra |
|
| | | b | | |
| | gera að fiski | | |
| | vinna að fiskinum (t.d. afhausa eða slægja hann) |
| | | gera að <sárinu> | | |
|
| | | c | | |
| | geta ekki að þessu gert | | |
| | eiga ekki sök á þessu, fá ekki við þetta ráðið | | | dæmi: ég get ekki að því gert þó að fluginu hafi seinkað |
|
|
|
|
| | 11 |
| |
| | gera + af | | |
| | a | | |
| | gera <eitthvað> af sér | | |
| | aðhafast eitthvað óleyfilegt | | | dæmi: þeir segjast ekki hafa gert neitt af sér |
|
| | | b | | |
| | hvað hef ég gert af <pennanum mínum>? | | |
| | hvar hef ég látið pennann minn? |
|
| | | c | | |
| | <hann> veit ekki hvað <hann> á af sér að gera | | |
| | hann er ringlaður og veit ekki hvað hann á aðhafast |
|
|
|
|
| | 12 |
| |
|
| | 13 |
| |
| | gera + fyrir | | |
| | gera sér lítið fyrir og <skora 10 mörk> | | |
| | skora 10 mörk með léttum leik, án fyrirhafnar |
|
|
|
| | 14 |
| |
| | gera + í | | |
| | gera í því að <vera leiðinlegur> | | |
| | reyna að vera leiðinlegur, leggja sig fram um það |
|
|
|
| | 15 |
| |
| | gera + með | | |
| | gera <ekkert> með <þetta> | | |
| | bregðast ekkert við þessu |
|
|
|
| | 16 |
| |
| | gera + til | | |
| | a | | |
| | <þetta> gerir ekkert til | | |
| | þetta er allt í lagi | | | dæmi: það gerir ekkert til þótt þú verðir svolítið seinn | | | dæmi: fötin mín blotnuðu en það gerði ekkert til |
|
| | | b | | |
| | gera sig til | | |
| | kalla á athygli e-s með útliti sínu eða látbragði | | | dæmi: hún gerir sig til fyrir strákunum |
|
|
|
|
| | 17 |
| |
| | gera + um | | |
| | það er um að gera | | |
| | það er mikilvægt, það á endilega (að ...) | | | dæmi: það er um að gera að nýta tímann vel |
|
|
|
| | 18 |
| |
| | gera + upp | | |
| | a | | |
| | gera upp <húsið> | | |
| | endurnýja húsið og koma því í nýtt og betra ástand, skipta um glugga, innréttingar o.þ.h. | | | dæmi: íbúðin hefur verið gerð upp á smekklegan hátt |
|
| | | b | | |
| | gera upp | | |
| | koma fjármálunum á hreint, borga reikninginn | | | dæmi: við gerðum upp við þjóninn og fórum út |
|
| | | c | | |
| | gera <þetta> upp við sig | | |
| | (reyna að) ákveða sig | | | dæmi: ég gat ekki gert upp við mig hvor húfan væri flottari |
|
| | | d | | |
| | gera sér upp <veikindi> | | |
| | þykjast vera veikur, uppdikta veikindi |
|
|
|
|
| | 19 |
| |
| | gera + upp á milli | | |
| | gera upp á milli <þeirra> | | |
| | koma fram við þau af ójöfnuði, mismuna þeim | | | dæmi: hún gerir ekki upp á milli barnanna sinna |
| | | geta ekki gert upp á milli <þessara tveggja málverka> | | |
| | geta ekki ákveðið hvort sé álitlegra |
|
|
|
| | 20 |
| |
| | gera + úr | | |
| | a | | |
| | gera saft úr <berjum> | | |
| | búa til saft úr því hráefni | | | dæmi: hún gerði bát úr dagblaðinu |
|
| | | b | | |
| | | c | | |
| | gera <mikið> úr <vandamálinu> | | |
| | gera vandamálið stórt, þenja það út | | | dæmi: hann gerði lítið úr bakveiki sinni |
|
| | | d | | |
| | gera gott úr <öllu> | | |
| | bregðast við (neikvæðum) aðstæðum á jákvæðan hátt |
|
|
|
|
| | 21 |
| |
| | gera + út | | |
| | gera út <bát> | | |
| | stunda útgerð á <bát>, eiga og reka <bát> |
|
|
|
| | 22 |
| |
| | gera + út af við | | |
| | gera út af við <hana> | | |
| | drepa hana | | | dæmi: fyrirlesarinn var að gera út af við mig af leiðindum |
|
|
|
| | 23 |
| |
| | gera + út um | | |
| | gera út um <þetta> | | |
| | ákveða þetta, úrskurða um þetta | | | dæmi: þeir ætluðu að gera út um deiluna með slagsmálum |
|
|
|
| | 24 |
| |
| | gera + við | | |
| | a | | |
| | gera við <kranann> | | |
| | koma krananum í lag, lagfæra hann | | | dæmi: hann gat ekki gert við kassettutækið |
|
| | | b | | |
| | gera vel við <hana> | | |
| | sýna henni vinsemd og örlæti |
|
| | | c | | |
| | geta <lítið> gert við <þessu> | | |
| | geta lítið við þetta ráðið |
|
|
|
|
| | orðasambönd: |
| | gerðu svo vel |
| |
| | sagt kurteislega þegar 1) e-r biður um e-ð 2) e-m er boðið að gera e-ð | | | dæmi: má ég fá saltið? - gerðu svo vel | | | dæmi: gerið þið svo vel að koma inn |
|
| | gerast |
| | gerður |