Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

yfir fs/ao
 
framburður
 fallstjórn: þágufall/þolfall
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 um hreyfingu ofan á e-ð
 dæmi: hún stráði salti yfir matinn
 dæmi: hann breiddi teppið yfir rúmið
 2
 
 fallstjórn: þágufall
 um staðsetningu fyrir ofan e-ð
 dæmi: ljósakrónan hangir yfir borðinu
 dæmi: það er þokuloft yfir borginni
 3
 
 fallstjórn: þolfall
 um hreyfingu/stefnu til staðar hinum megin við e-ð
 dæmi: við ókum yfir brúna
 dæmi: hún þarf að komast yfir landamærin
 4
 
 fallstjórn: þolfall
 um tímaskeið
 dæmi: hún er ein heima yfir daginn
 5
 
 fallstjórn: þolfall
 með vísun til heildar/meðaltals á tímaskeiði
 dæmi: verðbólgan er 6% yfir árið
 6
 
 (án skýrra fallstjórnaráhrifa; um mælanlega stærð/magn o.þ.h.) meira en
 dæmi: gjaldið er yfir þúsund krónur/krónum
 dæmi: hann hefur skorað yfir 20 mörk á leiktíðinni
 7
 
 fallstjórn: þágufall
 (um ástæðu, orsök eða tilefni) út af, vegna
 dæmi: þær kvarta yfir öllu
 dæmi: hann gleðst yfir sigrinum
 8
 
 fallstjórn: þágufall/þolfall
 um stjórn eða forystu
 dæmi: foringi yfir hernum
 dæmi: hver er yfir stofnuninni?
 dæmi: nýr maður var settur yfir rannsóknina
  
orðasambönd:
 vera yfir sig <spenntur, hræddur>
 
 í áhersluhlutverki með lýsingarorðum
 dæmi: ég varð yfir mig hræddur þegar hundurinn glefsaði í mig
 sbr. undir
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík