Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

vinna so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 stunda vinnu, starfa
 dæmi: hann vinnur á hóteli
 dæmi: hún vann í banka
 dæmi: hann vinnur sem sölumaður
 dæmi: hún vinnur við að hanna föt
 vinna eins og skepna
 vinna í fiski
 vinna utan heimilis
 vinna úti
 2
 
 fallstjórn: þolfall
 gera, framkvæma (e-ð)
 dæmi: þeir unnu mikið afrek
 dæmi: hún hefur unnið gott starf hjá fyrirtækinu
 dæmi: ritgerðin er vel unnin
 dæmi: mýsnar unnu tjón á heyinu
 3
 
 fallstjórn: (þágufall +) þolfall
 gera (e-m e-ð)
 dæmi: þau vinna samfélaginu mikið gagn
 dæmi: þjófarnir unnu margvíslegt tjón
 4
 
 fallstjórn: þolfall
 búa til (e-ð) úr hráefni
 dæmi: afli skipanna er unninn í landi
 5
 
 fallstjórn: þolfall
 verða fremstur í keppni, sigra (e-ð/e-ð)
 dæmi: hann vann skíðastökkið
 dæmi: hún vann gullverðlaun
 dæmi: ég hef aldrei unnið í happdrætti
 vinna sigur
 það er <fátt> unnið með <þessu>
 
 það er lítið gagn af þessu
 dæmi: hvað er unnið með því að rækta skóg?
 6
 
 vinna + að
 
 vinna að <verkefninu>
 
 starfa í verkefninu
 dæmi: unnið er að viðgerð á veginum
 7
 
 vinna + af
 
 vinna af sér <fjóra tíma>
 
 vinna þessa tíma fyrirfram, eiga þá inni
 8
 
 vinna + á
 
 a
 
 vinna á
 
 venjast vel, verða viðkunnanlegri með tímanum
 dæmi: bókin er leiðinleg í byrjun en hún vinnur á
 b
 
 <hnífurinn> vinnur ekki á <kjötinu>
 
 hann ræður (ekki) við (að skera sundur) kjötið
 9
 
 vinna + fyrir
 
 vinna fyrir <sér>
 
 vinna til að framfleyta sér
 dæmi: hún vann fyrir sér við saumaskap
 vinna fyrir <kaupi>
 
 vinna og fá kaup
 10
 
 vinna + gegn
 
 vinna gegn <hagsmunum ríkisins>
 
 skemma fyrir hagmunum þess
 11
 
 vinna + inn
 
 vinna sér inn <peninga>
 
 fallstjórn: þágufall + þolfall
 vinna og fá peninga í laun, þéna peninga
 vinna sér inn fyrir <ferðalagi>
 12
 
 vinna + í
 
 a
 
 vinna í fiski
 b
 
 vinna í <vandamálinu>
 
 vera að reyna að leysa málið
 dæmi: eigendurnir eru að vinna í því að bæta reksturinn
 13
 
 vinna + til
 
 vinna til <verðlauna>
 
 hljóta verðlaun
 dæmi: hann vann til þrennra verðlauna á Ólympíuleikunum
 vilja allt til vinna
 
 vera tilbúinn að leggja mikið á sig
 dæmi: kvikmyndastjörnurnar vilja allt til vinna til að halda unglegu útliti sinu
 það er til mikils að vinna
 
 það er mikill ávinningur í húfi
 14
 
 vinna + upp
 
 fallstjórn: þolfall
 a
 
 vinna upp <töfina>
 
 vinna hraðar eða meira, sem nemur því sem töfin olli
 b
 
 vinna sig upp
 
 komast í hærri stöðu
 dæmi: hún byrjaði sem sendill hjá fyrirtækinu en hefur unnið sig upp í deildarstjóra
 15
 
 vinna + úr
 
 a
 
 vinna <lyf> úr <plöntunni>
 
 búa til lyf úr plöntunni
 dæmi: sykur er unninn úr sykurrófum
 b
 
 vinna <silfur> úr jörðu
 
 taka silfur úr jörð með námagrefti
 c
 
 vinna úr <heimildunum>
 
 nota heimildirnar í afurð (ritsmíð)
 d
 
 vinna úr <áfallinu>
 
 komast yfir áfallið (með markvissum aðferðum)
 vinnast
 unninn
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík