Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

undir fs
 
framburður
 fallstjórn: þágufall/þolfall
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 um hreyfingu að stað fyrir neðan e-ð
 dæmi: barnið skreið undir borðið
 2
 
 fallstjórn: þágufall
 um staðsetningu fyrir neðan e-ð
 dæmi: hún faldi sig undir rúminu
 3
 
 fallstjórn: þágufall
 um staðsetningu upp við/í skjóli við (e-ð)
 dæmi: bærinn stendur undir hólnum
 4
 
 fallstjórn: þolfall
 með vísun til hlutar og innihalds hans
 dæmi: kassi undir bækur
 dæmi: mig vantar hirslu undir saumadótið
 5
 
 fallstjórn: þolfall
 um tímasetningu skömmu fyrir e-n tímapunkt
 dæmi: við komum heim undir miðnætti
 dæmi: ég sofnaði loks undir morgun
 6
 
 fallstjórn: þágufall
 (um mælanlega stærð/magn o.þ.h.) minna en e-ð
 dæmi: launin eru undir 100 þúsund krónum á mánuði
 sbr. yfir
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík