Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

stinga so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 reka e-ð oddhvasst í e-ð
 dæmi: hún stingur nálinni í efnið
 dæmi: hann stakk gafflinum í kjötið
 dæmi: hann var stunginn af geitungi
 stinga sig
 
 dæmi: ég stakk mig á kaktus
 2
 
 fallstjórn: þágufall
 láta, setja (e-ð einhvers staðar)
 dæmi: ég stakk miðanum í vasann
 dæmi: hún stingur bréfinu í póstkassann
 dæmi: hann stakk brauðsneiðum í brauðristina
 dæmi: selurinn stingur hausnum upp úr sjónum
 stinga <pennanum> á sig
 
 setja hann inn á sig, í vasann
 stinga <brjóstsykursmola> upp í sig
 
 láta hann í munninn á sér
 3
 
 fallstjórn: þolfall
 valda (e-m) kláða
 dæmi: þessi ullarpeysa stingur
 4
 
 fallstjórn: þágufall
 stinga sér
 
 stökkva út í vatn
 dæmi: krakkarnir stungu sér í sundlaugina
 stinga sér til sunds
 5
 
 fallstjórn: þolfall
 <þetta> stingur <mig>
 
 ég tek eftir þessu
 dæmi: það stakk mig hvað hann var kærulaus
 6
 
 stinga + að
 
 fallstjórn: þágufall
 stinga <þessu> að <henni>
 
 benda henni á þetta (stuttlega)
 dæmi: hún stakk því að mér að sækja um þennan styrk
 7
 
 stinga + af
 
 stinga af
 
 láta sig hverfa, flýja
 dæmi: þjófarnir stungu af með ránsfenginn
 dæmi: hún stakk af úr samkvæminu
 8
 
 stinga + á
 
 stinga á sig <peningunum>
 
 setja peningana í vasann
 dæmi: þjófurinn stakk á sig fimm sígarettupökkum
 stinga á <kýlinu>
 
 gera gat á kýlið (til að hleypa út vessa)
 9
 
 stinga + inn
 
 fallstjórn: þágufall
 stinga <honum> inn
 
 setja hann í fangelsi
 10
 
 stinga + niður
 
 stinga niður <túlípanalaukum>
 
 fallstjórn: þágufall
 setja túlípanalauka í mold
 <flensan> stingur sér niður
 
 flensu verður vart
 11
 
 stinga + undan
 
 fallstjórn: þágufall
 stinga <peningunum> undan
 
 dæmi: hún var kærð fyrir að stinga undan fé fyrirtækisins
 12
 
 stinga + upp
 
 fallstjórn: þolfall
 stinga upp <kálgarðinn>
 
 losa sundur moldina í kálgarðinum með skóflu eða gaffli
 13
 
 stinga + upp á
 
 stinga upp á <þessu>
 
 koma með þessa tillögu, uppástungu, leggja þetta til
 dæmi: þær stungu upp á gönguferð í skóginum
 14
 
 stinga + upp í
 
 fallstjórn: þágufall
 stinga <jarðarberi> upp í sig
 
 láta það í munninn á sér
 dæmi: ég stakk upp í mig súkkulaðimola
 15
 
 stinga + út
 
 a
 
 stinga út <smákökur>
 
 móta smákökur með glasi eða formi
 b
 
 stinga út úr <fjárhúsinu>
 
 moka skít út úr fjárhúsinu
 16
 
 stinga við
 
 stinga við
 
 vera haltur, haltra
 dæmi: hann stingur við eins og hann hafi meitt sig
  
orðasambönd:
 stinga saman nefjum
 
 tala saman einslega
 stingast
 stingandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík