|
framburður |
| beyging |
| 1 |
|
| fallstjórn: þolfall | | gera (e-n) rólegan, halda aftur af (e-m) | | dæmi: hún var orðin æst en ég reyndi að stilla hana | | dæmi: hann á erfitt með að stilla skap sitt |
|
| 2 |
|
| fallstjórn: þolfall | | koma (e-u) í rétt horf | | dæmi: það þarf að stilla píanóið | | dæmi: hann stillti klukkuna svo að hún er nú rétt |
|
| 3 |
|
| stilla <neyslunni> í hóf | |
| fallstjórn: þágufall | | hemja neysluna, takmarka neysluna | | dæmi: launþegahreyfingin stillir kröfum sínum í hóf í þetta sinn |
|
|
| 4 |
|
| stilla + inn á | |
| stilla sig inn á <ný vinnubrögð> | |
| fallstjórn: þolfall | | temja sér ný vinnubrögð |
|
|
|
| 5 |
|
| stilla + til | |
| stilla því <þannig> til | |
| fallstjórn: þágufall | | sjá til þess að þetta verði svona og svona | | dæmi: ég stillti því þannig til að ég yrði heima um morguninn |
| | stilla til friðar | |
| miðla málum, koma á friði | | dæmi: lögreglan var kölluð til að stilla til friðar í miðbænum |
|
|
|
| 6 |
|
| stilla + um | |
| stilla sig um að <hlæja> | |
| fallstjórn: þolfall | | láta ekki eftir sér að fara að hlæja | | dæmi: ég gat ekki stillt mig um að gera athugasemd |
|
|
|
| 7 |
|
| stilla + upp | |
| stilla sér upp | |
| fallstjórn: þágufall | | taka sér stöðu | | dæmi: hann stillti sér upp við eldhúsborðið |
| | stilla <málverkinu> upp | |
| fallstjórn: þágufall | | setja ... í ákveðnar skorður, ákveðna stöðu | | dæmi: nemendunum var stillt upp fyrir myndatöku |
| | uppstilltur |
|
|
| 8 |
|
| stilla + út | |
| stilla út <varningi> | |
| fallstjórn: þágufall | | koma honum fyrir til sýnis | | dæmi: verslunin hefur stillt út sumartískunni í gluggann |
|
|
|
| stillast |