|
framburður |
| beyging |
| fallstjórn: þolfall |
| 1 |
|
| hafa vitsmunalegan skilning (á e-u), geta meðtekið (e-ð) | | dæmi: hún skilur rússnesku | | dæmi: ég skil ekki hvað hann meinar | | dæmi: nemendurnir skildu ekki baun í ljóðinu | | dæmi: ég skildi hana vel þegar hún hætti í náminu | | eins og gefur að skilja | |
| eins og skiljanlegt er, augljóslega | | dæmi: brúin er mjög mikilvæg eins og gefur að skilja |
|
|
| 2 |
|
| greina (e-ð) frá öðru, skipta (e-u) í sundur | | dæmi: mikið fljót skilur löndin tvö | | dæmi: vegfarendur skildu áflogaseggina | | dæmi: umferðareyjar skilja í sundur akbrautirnar | | dæmi: herbergið er skilið í sundur með bókaskápum | | <hér> skilur leiðir | |
| hér liggja leiðir í sitthvora áttina | | dæmi: á torginu skildi leiðir okkar, ég fór niður að ánni |
| | <sósan> skilur sig | |
|
|
| 3 |
|
| yfirgefa eða kveðja hvor annan | | dæmi: við skildum á flugvellinum |
|
| 4 |
|
| slíta hjónabandi, hætta að vera í hjónabandi | | dæmi: þau hafa ákveðið að skilja | | dæmi: þau skildu fyrir 5 árum |
|
| 5 |
|
| skilja + að | |
| skilja <þá> að | |
| taka þá, færa þá í sundur | | dæmi: systkinin voru skilin að í bernsku |
|
|
|
| 6 |
|
| skilja + eftir | |
| skilja <bréfið> eftir | |
| láta bréfið verða um kyrrt | | dæmi: hann skildi bílinn eftir heima og gekk í vinnuna | | dæmi: geturðu skilið lykilinn eftir á borðinu? | | dæmi: hún skildi hundinn eftir einan heima |
|
|
|
| 7 |
|
| skilja + frá | |
| skilja sig frá <hinu> | |
| greina sig frá hinu, vera öðruvísi en hitt | | dæmi: plantan skilur sig frá öðrum tegundum þar sem blómin eru gul |
|
|
|
| 8 |
|
| skilja + í | |
| skilja ekkert í <þessu> | |
| botna ekkert í þessu, fatta þetta ekki | | dæmi: hún skilur ekkert í sænsku | | dæmi: ég skil ekkert í þér að vera svona reiður |
|
|
|
| 9 |
|
| skilja + út undan | |
| skilja <hana> út undan / útundan | |
| taka hana ekki með, horfa framhjá henni | | dæmi: ekkert barn var skilið út undan þegar jólagjöfunum var útbýtt |
|
|
|
| 10 |
|
| skilja + við | |
| a | |
| skilja við | |
| deyja | | dæmi: sjúklingurinn skildi við klukkan fjögur |
|
| | b | |
| skilja við <hana> | |
| fara í aðra átt en hún | | dæmi: ég skildi við hann á bókasafninu |
|
| | c | |
| skilja við <maka sinn> | |
| fá hjónaskilnað við hann | | dæmi: hann skildi við hana vegna ósamkomulags þeirra |
|
| | d | |
| skilja <vel> við <húsið> | |
| hafa húsið í góðu ástandi þegar það er yfirgefið |
|
| | e | |
| skilja <úrið> aldrei við sig | |
| hafa það ávallt á sér eða nálægt sér | | dæmi: ég skil þennan hring aldrei við mig |
|
|
|
|
| skiljast |
| skilinn |