| (um þrjá eða fleiri) dreifimerking (vísar til liðar, oft(ast) frumlags, sem er í fleirtölu eða samsettur) - tvíyrt fornafn; báðir hlutar beygjast (sbr. "sinn" og "hver") en sambeygjast ekki; "sinn" lagar sig að orðinu sem það vísar til en "hver" að orðinu sem það stendur með |
| dæmi: þau eiga þrjú börn, sitt á hverju árinu |
| dæmi: þeir ferðuðust þrír saman, sinn frá hverjum bæ |
| dæmi: bókunum var safnað saman sinni úr hverri áttinni |
| sitt hvað |
|
| 1 | |
| ýmislegt | | dæmi: kennarinn hafði sitt hvað að athuga við efni ritgerðarinnar |
| | 2 | |
| ekki það sama | | dæmi: það er sitt hvað, hæfileikar og velgengni |
|
|
| sitt (lítið) af hverju |
|
| eitt og annað (smálegt), ýmislegt (svolítið af ýmsu) | | dæmi: þær ræddu sjálfsagt sitt af hverju þegar ég heyrði ekki til | | dæmi: í siglingunni er boðið upp á sitt lítið af hverju - hvalaskoðun, sjóstangaveiði, miðnætursól og fleira |
|
| sitt af hverju tagi |
|
| eitt og annað, ýmislegt | | dæmi: hún setti sitt af hverju tagi í skálar og bar það fram með kaffinu |
|
| sitt sýnist hverjum <um þetta> |
|
| sérhver hefur sína skoðun <á þessu> | | dæmi: málið var rætt á fundinum og sýndist sitt hverjum | | dæmi: sitt sýndist hverjum um lausn deilunnar |
|