| |
framburður |
| | beyging |
| | eignarfornafn, almennt á eftir nafnorðinu en getur stundum staðið á undan því (og þá einnig lýsingarorðum og/eða töluorði) |
| | 1 |
| |
| | (eignarfornafn) sem ég á, sem tilheyrir mér | | | dæmi: ég var að selja gamla bílinn minn | | | dæmi: íbúðin mín er á fjórðu hæð | | | dæmi: ég skal lána þér mína bók | | | dæmi: ég hlýt að ráða á mínu eigin heimili |
|
| | 2 |
| |
| | (eignarfornafn) sem ég hef, sem tengist mér | | | dæmi: mér bregður við að sjá andlit mitt í speglinum | | | dæmi: ég ætla ekki að eyða lífi mínu í að láta mér leiðast | | | dæmi: maðurinn neitaði að svara spurningum mínum | | | dæmi: það vakti athygli mína að Jónas mætti ekki á fundinn | | | dæmi: að mínu mati er leikritið alls ekki nógu gott |
|
| | 3 |
| |
| | sérstætt | | | (eignarfornafn) sem ég á eða hef, sem tengist mér | | | dæmi: hann keypti sér nýjan frakka, ekki ósvipaðan mínum gamla | | | dæmi: ritgerðin hans var styttri en mín | | | dæmi: ég ætla að gera orð skáldsins að mínum | | | dæmi: ég vil leggja mitt af mörkum |
|
| | 4 |
| |
| | (eignarfornafn; um fólk) sem tengist mér | | | dæmi: bróðir minn og systur mínar tvær eru öll rauðhærð | | | dæmi: einn kunningi minn fór til Afríku í vetur | | | dæmi: ég er ekki mjög hrifinn af stærðfræðikennaranum mínum | | | dæmi: Þóra er mín elsta og besta vinkona |
|
| | 5 |
| |
| | í ávarpi | | | eignarfornafn; einkum við börn eða einhverja nákomna | | | dæmi: ertu loksins komin, ástin mín? | | | dæmi: strákar mínir, nennið þið ekki að moka tröppurnar | | | dæmi: ósköp er að sjá þig, greyið mitt! |
|
| | 6 |
| |
| | í ávarpi | | | eignarfornafn; við fullorðið fólk, einkum ókunnuga | | | dæmi: viltu fylla tankinn, góði minn |
|
| | 7 |
| |
| | sérstætt, óformlegt | | | (um fólk, yfirleitt einhvern nákunnugan og viðstaddan) sá eða sú sem vísað er til | | | dæmi: minn er bara kominn í sparifötin! | | | dæmi: sko mína, bara búin með allan matinn sinn! |
|
| | 8 |
| |
| | sérstætt, barnamál | | | hlutverk eða persóna þess sem talar (einkum í leik) | | | dæmi: nú kemur minn á fleygiferð | | | dæmi: minn vann! |
|