Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

lifa so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 vera á lífi
 dæmi: hún hefur lifað í 90 ár
 dæmi: sjúklingurinn lifði ekki lengi
 dæmi: lengi lifi konungurinn!
 2
 
 búa, dvelja, vera (einhvers staðar)
 dæmi: fiskurinn lifir í ósöltu vatni
 dæmi: aparnir lifa í frumskóginum
 3
 
 fallstjórn: þolfall
 upplifa, reyna (e-ð)
 dæmi: hann hafði lifað tvær heimsstyrjaldir
 4
 
 (um eld eða glóð) vera ekki slokknaður
 dæmi: eldurinn lifði enn í arninum
 það lifir í <glæðunum>
 5
 
 lifa + af
 
 lifa af <kaupinu>
 
 nota kaupið sér til framfærslu
 dæmi: hún segist ekki geta lifað af kennaralaununum
 lifa af
 
 komast lífs af
 dæmi: þrír lifðu af þegar flugvélin hrapaði
 dæmi: hermaðurinn lifði af stríðið
 6
 
 lifa + á
 
 lifa á <ritstörfum>
 
 hafa ritstörf sér til framfærslu
 dæmi: hann lifir á því að gera við bíla
 lifa á <grasi>
 
 éta gras sér til lífsviðurværis
 dæmi: hvalurinn lifir á fiski
 dæmi: við lifum mest á kjöti og kartöflum
 7
 
 lifa + eftir
 
 lifa eftir <þessari reglu>
 
 hegða sér í samræmi við þessa reglu
 það sem eftir lifir <dagsins>
 
 það sem eftir er af deginum
 dæmi: hún stýrði hótelinu það sem eftir lifði vetrar
 8
 
 lifa + fyrir
 
 lifa fyrir <hana>
 
 beina áhuga sínum og kröftum að henni
 dæmi: hún lifði fyrir dýrin á bænum
 9
 
 lifa + inn í
 
 fallstjórn: þolfall
 lifa sig inn í <kvikmyndina>
 
 vera staddur í kvikmyndinni í huganum
 10
 
 lifa + við
 
 lifa við <þetta>
 
 lifa við þetta ástand, vera í þessu ástandi
 dæmi: hún gat ekki lifað við þessa skömm
 dæmi: hann lifir við allsnægtir í tveimur löndum
 dæmi: þvottavélin er ekki mjög góð en ég get lifað við hana
 lifandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík