Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

leysa so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þolfall
 1
 
 losa (e-ð) í sundur, rekja (e-ð) sundur
 dæmi: getur þú leyst hnútinn?
 dæmi: ég leysti bandið af pakkanum
 dæmi: fanginn var leystur úr böndunum
 2
 
 veita (e-u) lausn, finna lausn (á e-u)
 dæmi: ég get ekki leyst krossgátuna
 dæmi: nemendur eru látnir leysa erfið verkefni
 dæmi: hún leysir vanda viðskiptavina sinna eftir bestu getu
 3
 
 frumlag: þolfall
 (um snjó) taka upp, bráðna og hverfa
 dæmi: snjóinn leysti um vorið
 4
 
 leysa + af
 
 leysa <hana> af
 
 koma tímabundið í staðinn fyrir hana
 dæmi: skólafólk leysir starfsmennina af á sumrin
 leysa <þetta> af hólmi
 
 koma í staðinn fyrir þetta
 dæmi: expressóvélin hefur leyst gömlu kaffivélina af hólmi
 5
 
 leysa + niður
 
 leysa niður um <sig>
 
 taka niður buxurnar
 6
 
 leysa + undan
 
 leysa <hana> undan <þessu>
 
 losa hana við þetta (t.d. verkefni)
 dæmi: hann var leystur undan allri ábyrgð
 dæmi: hann hefur verið leystur undan samningi við fótboltafélagið
 dæmi: hann var leystur undan herþjónustu
 7
 
 leysa + upp
 
 leysa upp <saltið>
 
 láta salt blandast vökva og samlagast honum
 dæmi: vatn leysir upp sykur
 dæmi: leysið upp innihald pakkans í bolla af sjóðandi vatni
 uppleystur
 8
 
 leysa + úr
 
 leysa úr <deilunni>
 
 finna lausn, svar, binda enda á deiluna
 dæmi: gjaldkerinn í bankanum gat leyst úr vandræðum mínum
 dæmi: hún reyndi að leysa úr spurningum ráðstefnugesta
 9
 
 leysa + út
 
 leysa út <ávísunina>
 
 skila henni í bankann og fá peninga/inneign í staðinn
 leysa <hana> út með <gjöf>
 
 láta hana fara, kveðja hana með gjöf
 dæmi: afmælisgestirnir voru leystir út með nammipoka
  
orðasambönd:
 leysa frá skjóðunni
 
 segja (loksins) frá, segja allt af létta, láta allt uppi
 <öskra> eins og <hún> eigi lífið að leysa
 
 öskra af öllum kröftum
 leysast
 leysandi
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík