Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

leggjast so info
 
framburður
 beyging
 form: miðmynd
 1
 
 fara í liggjandi stellingu
 dæmi: hún lagðist í rúmið
 dæmi: leggstu niður og hvíldu þig
 dæmi: hundurinn leggst á gólfið
 dæmi: við lögðumst til svefns í hlöðunni
 2
 
 leggjast lágt
 
 auðmýkja sig
 dæmi: ég gat ekki lagst svo lágt að betla peninga
 3
 
 leggjast + að
 
 <skipið> leggst að bryggju
 
 skipið nemur staðar við bryggjuna
 4
 
 leggjast + af
 
 <siðurinn> leggst af
 
 siðurinn hættir með öllu
 dæmi: veiðar á bjargfugli hafa lagst af að mestu
 5
 
 leggjast + á
 
 a
 
 leggjast á eitt
 
 hjálpast að, taka höndum saman
 dæmi: vinir hans lögðust á eitt um að hjálpa honum
 b
 
 <refurinn> leggst á <lömbin>
 
 refurinn sækir í lömbin
 c
 
 <áhyggjurnar> leggjast þungt á <hana>
 
 áhyggjurnar hvíla þungt á henni
 6
 
 leggjast + gegn
 
 leggjast gegn <tillögunni>
 
 vera á móti, andmæla tillögunni
 dæmi: íbúarnir lögðust gegn byggingu háhýsisins
 7
 
 leggjast + í
 
 a
 
 leggjast í þunglyndi
 
 verða þunglyndur
 b
 
 leggjast í drykkju
 
 fara að drekka mikið áfengi
 c
 
 leggjast í ferðalög
 
 fara að ferðast mikið
 d
 
 leggjast í dvala
 
 fara í vetrarsvefn (einkum um dýr)
 e
 
 <verkefnið> leggst <vel> í <mig>
 
 ég hef góða tilfinningu fyrir komandi verkefni
 8
 
 leggjast + með
 
 leggjast með <henni>
 
 fara í rúmið með henni, hafa mök við hana
 9
 
 leggjast + niður
 
 <framleiðslan> leggst niður
 
 framleiðslan hættir, stöðvast fyrir fullt og allt
 dæmi: hvalveiðar lögðust niður við landið
 10
 
 leggjast + til
 
 <mér> leggst <eitthvað> til
 
 frumlag: þágufall
 ég fæ einhver úrræði, efni eða peninga
 dæmi: hann lánar þeim vonandi dálítið, þeim leggst eitthvað til
 11
 
 leggjast + yfir
 
 a
 
 <þokan> leggst yfir <borgina>
 
 þokan kemur yfir borgina
 b
 
 leggjast yfir <textann>
 
 skoða, rýna vandlega í textann
 dæmi: þær lögðust yfir orðalag samningsins
 leggja
 lagstur
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík