Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

leggja so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fallstjórn: þolfall
 láta (e-n) liggja
 dæmi: hann lagði barnið í rúmið
 leggja sig
 
 fá sér blund eða stutta hvíld
 2
 
 fallstjórn: þolfall
 setja (e-ð) niður eða frá sér (e-s staðar)
 dæmi: hann leggur kassann varlega niður
 dæmi: ég lagði dagblaðið á eldhúsborðið
 dæmi: þau lögðu frá sér innkaupapokana
 3
 
 fallstjórn: þolfall
 (um framkvæmd) koma (e-u) fyrir
 dæmi: rafmagn var lagt í húsið
 dæmi: það á að leggja nýjan veg
 dæmi: þau lögðu parket á stofuna
 dæmi: hann lagði flísar á baðherbergið
 4
 
 fara af stað, halda burt
 dæmi: við lögðum á heiðina um hádegið
 leggja af stað
 leggja í hann
 leggja upp <í ferðina>
 leggja leið sína <um dalinn>
 leggja frá bryggju
 leggja á flótta
 5
 
 fallstjórn: þágufall
 koma bíl fyrir í bílastæði
 dæmi: hann leggur bílnum hjá búðinni
 dæmi: við lögðum í bílastæði
 6
 
 fallstjórn: þágufall
 hætta að nota e-ð (einkum tæki eða vél)
 dæmi: hún er búin að leggja gömlu kaffivélinni
 7
 
 fallstjórn: þolfall
 fella (e-n) í viðureign
 dæmi: hann lagði alla andstæðinga sína
 8
 
 fallstjórn: þolfall
 beita vopni eða hnefum (á e-n)
 leggja hendur á <hana>
 
 beita hana ofbeldi
 leggja <óvininn> í gegn
 
 stinga hann á hol
 9
 
 frumlag: þolfall/það
 fara, smjúga um, dreifast
 dæmi: ilminn lagði um allt húsið
 dæmi: það leggur reyk út um gluggann
 10
 
 frumlag: þolfall
 frjósa á yfirborðinu
 dæmi: fjörðinn hafði lagt í frostinu
 11
 
 <bekkurinn> eins og hann leggur sig
 
 allur og heill bekkurinn (í skólanum)
 dæmi: þau seldu vörulagerinn eins og hann lagði sig
 12
 
 leggja + að
 
 a
 
 leggja hart að sér
 
 reyna sitt besta, vera duglegur
 dæmi: hún leggur hart að sér við námið
 b
 
 leggja fast að <honum>
 
 ýta á hann (að gera e-ð)
 13
 
 leggja + af
 
 leggja af
 
 megrast, horast
 dæmi: hún hefur lagt töluvert af
 14
 
 leggja + aftur
 
 fallstjórn: þolfall
 leggja aftur augun
 
 loka augunum
 leggja aftur hurðina
 
 loka hurðinni
 15
 
 leggja + á
 
 a
 
 leggja á borð
 
 setja diska, hnífapör o.þ.h. á matarborð
 b
 
 leggja <mikið> á <sig>
 
 gera sér mikla fyrirhöfn eða erfiði
 dæmi: ég hef lagt mikið á mig við að skrifa skýrsluna
 c
 
 leggja <skatt> á <eldsneytið>
 
 bæta skatti við eldneytisverðið
 dæmi: tollur er lagður á varninginn
 d
 
 leggja <ást> á <hana>
 
 elska hana
 e
 
 leggja ríkt á við <hana> að <gæta sín>
 
 áminna hana staðfastlega um það
 f
 
 leggja á
 
 setja niður símtólið, slíta símtalinu
 dæmi: ég kvaddi og lagði á
 g
 
 leggja <álög> á <hana>
 
 setja þessi álög á hana
 16
 
 leggja + fram
 
 a
 
 leggja sig (allan) fram
 
 gera eins vel og maður getur, reyna sitt besta
 dæmi: þau lögðu sig öll fram við vinnuna
 dæmi: ég legg mig fram um að vera kurteis
 b
 
 leggja fram <ársreikingana>
 
 sýna ársreikningana, t.d. á fundi
 dæmi: stofnunin hefur lagt fram nýja fjárhagsáætlun
 17
 
 leggja + fyrir
 
 a
 
 leggja fyrir
 
 safna sparifé
 b
 
 leggja <spurningu> fyrir <hana>
 
 fallstjórn: þolfall
 bera upp spurningu við hana
 c
 
 leggja fyrir sig <barnakennslu>
 
 fallstjórn: þolfall
 stunda, starfa við barnakennslu
 18
 
 leggja + inn
 
 leggja <peninga> inn
 
 láta peninga á bankareikning
 dæmi: hún lagði þúsund krónur inn á reikninginn hans
 19
 
 leggja + í
 
 a
 
 leggja (ekki) í <þetta>
 
 þora þessu (ekki), áræða þetta (ekki)
 dæmi: ég lagði ekki í að minnast á þetta við hann
 b
 
 leggja í <miklar fjárfestingar>
 
 fara út í þær
 c
 
 leggja í hann
 
 halda af stað, fara af stað (í lengri ferð)
 20
 
 leggja + niður
 
 a
 
 leggja niður störf
 
 hætta vinnu sinni, fara í verkfall
 b
 
 leggja niður vopn
 
 hætta að berjast, semja (tímabundinn) frið
 c
 
 leggja niður <spilaklúbbinn>
 
 hætta starfsemi spilaklúbbsins
 d
 
 leggja sig niður við <þetta>
 
 vera svo ómerkilegur að gera þetta
 dæmi: hann gat ekki lagt sig niður við slíka vinnu
 e
 
 leggja <þetta> niður fyrir sér
 
 velta þessu fyrir sér, íhuga þetta
 21
 
 leggja + saman
 
 leggja saman <tölurnar>
 
 gera samlagningaraðgerð á tölunum
 dæmi: ég legg saman 10 og 5 og fæ út 15
 leggja saman tvo og tvo
 
 (kunna að) draga réttar ályktanir
 22
 
 leggja + til
 
 a
 
 leggja <þetta> til
 
 koma með þessa tillögu, stinga upp á þessu
 dæmi: ég legg til að þú bíðir aðeins
 dæmi: lagt er til að reglurnar verði endurskoðaðar
 hafa <ekkert> til málanna að leggja
 
 hafa engu að bæta inn í umræðuna
 b
 
 leggja <henni> til <húsnæði>
 
 fallstjórn: (þágufall +) þolfall
 útvega henni húsnæði
 dæmi: spítalinn leggur starfsfólkinu til einkennisbúninga
 c
 
 leggja sér <þetta> til munns
 
 borða þetta
 dæmi: hún leggur eingöngu jurtafæði sér til munns
 d
 
 leggja til atlögu
 
 hefja orrustu
 e
 
 leggja til <hans>
 
 beita lagvopni á hann
 dæmi: hann lagði til hans með sverði
 23
 
 leggja + undir
 
 leggja undir sig <landið>
 
 taka landið á sitt vald
 24
 
 leggja + upp
 
 leggja upp <í ferðina>
 
 halda af stað í ferðina
 25
 
 leggja + upp úr
 
 leggja <mikið> upp úr <þessu>
 
 finnast þetta mikilvægt, vera umhugað um þetta
 dæmi: búðin leggur mikið upp úr persónulegri þjónustu
 26
 
 leggja + út
 
 leggja út <vissa upphæð>
 
 borga hana (einkum fyrir hönd annarra)
 dæmi: ég lagði út fyrir sameiginlegri gjöf okkar
 27
 
 leggja + út af
 
 leggja út af <textanum>
 
 nota textann sem undirstöðu í mál sitt (oft prestur sem leggur út af ritningargrein)
 28
 
 leggja + út í
 
 leggja út í <mikla fjárfestingu>
 
 fara út í hana
 29
 
 leggja + við
 
 a
 
 leggja <tvo> við <þrjá>
 
 bæta 2 við 3, leggja saman 2 og 3
 b
 
 leggja <rækt> við <vinskapinn>
 
 rækta vinskapinn, sýna honum ræktarsemi, alúð
 leggjast
 lagstur
 
_____________________
Úr málfarsbankanum:

Kennimyndir: leggja, lagði, lagt.<br>Í nútíð eru ávallt tvö <i>g</i>: fh. legg, vh. leggi. Í þátíð er aðeins eitt <i>g</i>: fh. lagði, vh. legði. Bh. leggðu, leggið.<br>Miðmynd: leggjast, lagðist, lagst. Nt. leggst.
_________________________________
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík