Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

falla so info
 
framburður
 beyging
 1
 
 fara hratt eða hægt niður, detta
 dæmi: bollinn féll á gólfið og brotnaði
 dæmi: snjórinn fellur til jarðar
 dæmi: skipverjinn féll útbyrðis
 dæmi: hár hennar fellur niður á axlirnar
 dæmi: mörg tré féllu í óveðrinu
 dæmi: kartöflugrösin féllu í frostinu
 dæmi: hitinn féll hratt
 dæmi: verðið á olíu hefur fallið
 falla um koll
 
 dæmi: stóllinn féll um koll með dynk
 <varan> fellur í verði
 2
 
 falla fram
 
 fara niður á hnén, leggjast flatur
 falla á kné
 
 fara niður á hnéð (hnén)
 dæmi: þeir féllu á kné frammi fyrir drottningunni
 3
 
 (um vatnsfall) renna, streyma
 dæmi: áin fellur til sjávar sunnanlands
 4
 
 (um ljós eða skugga) lenda e-s staðar
 dæmi: sólarljósið fellur inn um gluggana
 dæmi: skugginn af trénu féll á bekkinn
 5
 
 láta lífið, deyja
 dæmi: margir hermenn hafa fallið í bardögunum
 dæmi: fólkið féll úr hungri
 falla fyrir hendi <morðingja>
 6
 
 a
 
 standast ekki próf
 dæmi: hann féll í stærðfræði
 b
 
 standast ekki bindindi (á tóbak, áfengi, fíkniefni)
 7
 
 lenda, hafna (einhvers staðar)
 dæmi: borgin féll í hendur óvinunum
 <mikil hamingja> fellur <honum> í skaut
 
 honum hlotnast mikil hamingja
 8
 
 frumlag: þágufall
 líka við (e-n/e-ð)
 dæmi: mér fellur vel við hana
 dæmi: henni féll ekki hvað hann kom seint heim
 dæmi: mér fellur þetta þungt
 9
 
 falla + að
 
 a
 
 <myndin> fellur (vel) að <textanum>
 
 hún hæfir textanum vel, er í samræmi við hann
 dæmi: bækur hennar falla að hefðbundnum smekk lesenda
 b
 
 <skórinn> fellur (vel) að <fætinum>
 
 hann situr vel, passar á fótinn
 c
 
 það fellur að
 
 (um sjávarföll) það flæðir, sjórinn gengur upp í fjöruna
 10
 
 falla + á
 
 a
 
 það fellur á <silfrið>
 
 silfrið verður svart, það þarf að fægja það
 b
 
 <skuldin> fellur á <mig>
 
 ég þarf að greiða skuldina
 11
 
 falla + frá
 
 a
 
 falla frá
 
 andast, deyja
 b
 
 falla frá <áformum sínum>
 
 hætta við áform sín
 12
 
 falla + fyrir
 
 falla fyrir <honum>
 
 verða hrifinn eða ástfanginn af honum
 dæmi: ég féll strax fyrir litla húsinu með rauða þakinu
 13
 
 falla + niður
 
 a
 
 <fundurinn> fellur niður
 
 fundinum er aflýst
 dæmi: kennsla féll niður í skólanum vegna veðurs
 b
 
 láta málið niður falla
 
 hætta við rekstur málsins (fyrir rétti), gleyma málinu (t.d. ágreiningi manna á milli)
 14
 
 falla + saman
 
 <húsið> fellur saman
 
 húsið hrynur eins og spilaborg
 15
 
 falla + til
 
 það fellur <eitthvað> til
 
 eitthvað útvegast
 16
 
 falla + undir
 
 <skatturinn> fellur undir <fjármálaráðherra>
 
 skattamál heyra undir hann
 17
 
 falla + út
 
 það fellur út
 
 (um sjávarföll) sjórinn hörfar, það kemur fjara
 18
 
 falla + við
 
 frumlag: þágufall
 <mér> fellur við <hana>
 
 ég kann vel við hana, mér líkar vel við hana
  
orðasambönd:
 <honum> fellur aldrei verk úr hendi
 
 hann er alltaf eitthvað að iðja eða vinna
 fallast
 fallinn
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík