|
framburður |
| óákveðið fornafn |
| form: hvorugkyn |
| 1 |
|
| sérstætt | | um hluti eða fyrirbæri, oft óskilgreind: hvert eitt og einasta af því sem vísað er til eða búast má við | | dæmi: allt hér inni er svolítið gamaldags | | dæmi: - sæl, hvað er að frétta? - allt gott | | dæmi: hann tók til hráefnið og blandaði svo öllu saman í stórri skál | | dæmi: íbúðin var falleg og þar var allt til alls | | dæmi: þeim gekk vel í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur | | allir |
|
| 2 |
|
| hliðstætt, nafnorðið (oftast) með greini | | um tiltekinn hlut, afmarkað fyrirbæri, tímabil o.s.frv.: í heild | | dæmi: ertu búinn að lesa allt blaðið? | | allur |
|
| 3 |
|
| hliðstætt, nafnorðið (oftast) án greinis | | hvers kyns, það sem tilheyrir einhverju (t.d. hlut, safni eða fyrirbæri) í heild sinni | | dæmi: ég er orðin þreytt á öllu nöldri | | allur |
|
| 4 |
|
| sem atviksorð | | alveg; algjörlega | | dæmi: við gætum þá allt eins farið strax á morgun | | dæmi: allt fram yfir miðja 20. öld voru hér bara mýrar | | dæmi: ég er allt annar maður eftir að ég grenntist svona | | dæmi: nýi bíllinn er allt öðruvísi en sá gamli |
|
| 5 |
|
| form: þágufall | | sem atviksorð | | með miðstigi lýsingarorða eða atviksorðs: talsvert, í samanburði við eitthvað annað: miklu | | dæmi: það var slæmt að týna töskunni en öllu verra að tapa því sem var í henni |
|
| 6 |
|
| form: eignarfall | | sem atviksorð | | samanlagt | | dæmi: alls kostaði þetta næstum tíu þúsund krónur |
|
| 7 |
|
| form: eignarfall | | sem atviksorð | | til áherslu með neitun (eða orði sem felur í sér neitun) | | dæmi: Rauðhetta mátti alls ekki fara út af stígnum | | dæmi: það má alls enginn koma inn fyrr en ég kalla | | dæmi: elsti bróðirinn kom alls óvænt frá útlöndum |
|
| allt og sumt |
|
| það eina | | dæmi: allt og sumt sem við þurfum að gera í dag er að skrifa nokkur bréf |
|
| fyrir öllu |
|
| mikilvægara en allt annað | | dæmi: það er fyrir öllu að fólk komist heim heilu og höldnu |
|
| í allt |
|
| samtals, samanlagt | | dæmi: hvað eru ljósmyndirnar margar í allt? |
|
| í einu og öllu |
|
| í öllum atriðum, algjörlega | | dæmi: þú verður að fara í einu og öllu eftir leiðbeiningunum |
|
| í öllu falli |
|
| að minnsta kosti | | dæmi: hún er í öllu falli ekki lengur hér í húsinu |
|
| með öllu <bannað, óleyfilegt> |
|
| algjörlega <bannað, óleyfilegt> | | dæmi: þjónustunni var hætt með öllu | | dæmi: vegurinn er með öllu ófær fólksbílum |
|
| þrátt fyrir allt |
|
| samt sem áður, hvað sem öllu líður | | dæmi: þau héldu að þau gætu þrátt fyrir allt lokið verkinu á réttum tíma |
|
| allur |