Íslensk nútímamálsorðabók

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

hver fn
 
framburður
 spurnarfornafn / óákveðið fornafn
 1
 
 sérstætt
 (í upphafi beinnar spurningar) hvaða manneskja (þ.e. í opinni spurningu um fólk almennt)
 dæmi: hver braut skálina?
 dæmi: hverjum datt í hug að nota þessa aðferð?
 dæmi: hverja er systir þín að tala við?
 2
 
 sérstætt
 (sem tengiorð í upphafi spurnaraukasetningar) hvaða manneskja (þ.e. í óbeinni spurningu um fólk almennt)
 dæmi: hún spurði hver hefði hringt
 dæmi: mig grunaði strax hverjir hefðu komið
 dæmi: hann vissi ekki eftir hvern málverkið væri
 3
 
 (í upphafi beinnar spurningar eða spurnaraukasetningar; um þrjá eða fleiri; með eignarfallseinkunn eða forsetningarlið) hver úr tilteknum hópi
 dæmi: hver systranna býr fyrir austan?
 dæmi: hverjir af starfsmönnunum ætla að taka sumarfríi í júní?
 dæmi: sonur hennar spurði hverjum manna sinna hún hefði unnað mest
 4
 
 (í upphafi beinnar spurningar eða spurnaraukasetningar; stendur með so. "vera" og nafnorði (x) (oftast með ákveðnum greini) og svarar til þess) hvers eðlis er tiltekið x, hvað einkennir x
 dæmi: hver er maðurinn?
 dæmi: hver er munurinn á þessum tveimur tegundum?
 dæmi: ekki er vitað hver er uppruni lekans
 dæmi: þeir veltu því lengi fyrir sér hver skýringin væri
 5
 
 hliðstætt, sjaldgæft
 (í upphafi spurnarsetninga, einkum aukasetninga) hvaða, hvers konar
 dæmi: við vitum hver áhrif góð stjórn getur haft
 dæmi: stúlkan skynjaði strax hvern mann hann hafði að geyma
 hvers eðlis
 
 af hvaða tagi, með hvaða eiginleika eða einkenni
 dæmi: læknirinn útskýrði hvers eðlis sjúkdómurinn væri
 hvers lags
 
 hvers konar, af hvaða tagi
 dæmi: hvers lags vitleysa er þetta eiginlega?
 dæmi: forstjórinn vildi ekki segja hvers lags breytingar yrðu á aðstæðum starfsfólksins
 6
 
 hliðstætt
 (í spurnarsetningum) upphrópun með blótsyrði
 dæmi: hvern fjandann ert þú að þvælast hér?
 dæmi: ég gat ekki ímyndað mér hver andskotinn gengi þarna á
 7
 
 sérstætt
 sérhver (um fólk almennt)
 dæmi: hver er sinnar gæfu smiður
 dæmi: það var boðið upp á ávexti eins og hver gat í sig látið
 hver sem er
 
 hvaða manneskja sem vera skal, allir
 dæmi: þennan einfalda rétt getur hver sem er útbúið
 dæmi: við getum ekki treyst hverjum sem er fyrir börnunum
 8
 
 hliðstætt
 sérhver, hver einstakur
 dæmi: hver staður hefur sín sérkenni
 dæmi: áheyrendur klöppuðu ákaft á eftir hverju lagi
 dæmi: hún notaði hverja lausa stund til þess að æfa sig
 hver einasti <maður>
 
 sérhver <maður>, allir <menn>
 dæmi: hvert einasta barn í bekknum tók þátt í ferðinni
 með hverju <ári>
 
 eftir því sem enn eitt <ár, skref> bætist við
 dæmi: nemandinn tekur framförum með hverri vikunni sem líður
 dæmi: félagarnir urðu ræðnari og háværari með hverju glasi
 9
 
 (einkum með eignarfallseinkunn) sérhver í tilteknum hópi eða af tilgreindri gerð
 dæmi: hver þeirra fékk ákveðna upphæð
 dæmi: maður borgar fullt gjald fyrir fyrsta skiptið en hálft fyrir hvert hinna
 10
 
 hliðstætt
 í sambandi við ýmiss konar töluliði
 <einn> af hverjum <tíu>
 
 einhver <einn> í sérhverjum hópi með <tíu> einstaklingum eða hlutum
 dæmi: níu af hverjum tíu listaverkum vekja litla sem enga athygli
 dæmi: í 20% atvinnuleysi hafa tveir af hverjum tíu fullorðnum einstaklingum enga vinnu
 <fimmti> hver <nemandi>
 
 einn af hverjum <fimm> í röð
 dæmi: börnin voru hjá pabba sínum aðra hverja helgi
 dæmi: takið úr tvær lykkjur í tíundu hverri umferð
 hver og einn
 
 sérhver, hver einstakur
 dæmi: hver og einn verður að hugsa um eigin heilsu
 dæmi: hver og einn þátttakandi má nota þá aðferð sem hentar honum best
 hver fyrir/um sig
 
 sérhver, hver einstakur
 dæmi: hver leikmaður fyrir sig fær fimm spil í upphafi
 dæmi: ég virti þau fyrir mér hvert um sig
loðin leit
texti
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík